Gestalisti Fablab að undanförnu hefur einkennst af nemendum úr skólum landsins sem komið hafa til að vinna í verkefnum sínum.

Nemendur í Mastersnámi frá Landbúnaðarháskóla Íslands komu til okkar í Fablab í Apríl og unnu að lokaverkefni sínu. Þær gerðu líkan að landslagi úr pappa sem skorið var út í Epilog lasernum.
Nemendur í Fjölbrautaskóla Vesturlands unnu að þrívíddarverkefni í Stærfræði sem þau skáru út í lasernum. Þessi nýja kennsluaðferð virtist fara vel í nemendur sem leystu verkefnið með ágætum.

Justin Bieber er vinsæll hjá yngri kynslóðinni um þessar mundir og mun þessi flotti límmiði sem gerður var hjá okkur í Fablab Akranesi, nú prýða herbergisveggi ungrar Akranesmeyjar.
Á dögunum fór fram á Akranesi, Nýsköpunarhelgi á vegum Innovit nýsköpunar og frumkvöðlaseturs. Helgin var vel sótt og stóðum við í Fablab fyrir stuttri kynningu á starfsemi smiðjunnar. Okkur var vel tekið og nýttu forsvarsmenn Innovit sér m.a. aðstöuna til að skera út merki fyrirtækisins í plexígler.
Í sumar verður opnunartími Fablabs frekar óreglulegur sökum sumarfría og mun opnunartími verða auglýstur hér á síðunni. Lokað verður eftir hádegi á föstudögum um óákveðin tíma og eru notendur ítrekað hvattir til að athuga reglulega opnunartíma hér á síðunni þar sem óvæntar lokannir geta komið uppá, sökum funda, kennslu, námskeiða eða veikinda. Við bendum þeim sem koma lengra að sérstaklega til að fylgjast með þessu, auk þess er skynsamlegt er fyrir þá að panta sér tíma í laserinn fyrirfram ef um stærri verkefni er að ræða.
Mánudaginn 14. maí verður lokað eftir hádegi í Fablab.
Góða helgi


