Fab Lab á Sauðárkróki í þættinum „Í ljósi nýsköpunar“

Það er oft talað um að mynd segi meira en þúsund orð og fyrir stuttu var tekin upp þáttur á N4 sjónvarpstöðinni sem heitir „Í ljósi nýsköpunar“ þar sem fjallað er um Fab Lab smiðjuna á Sauðárkróki. Í þessum þætti er farið í gegnum hvað Fab Lab smiðjan er og hvernig skólar á svæðinu og frumkvöðlar eru að nýta sér smiðjuna. Við mælum eindregið með því að þið kíkið á þetta en sjón er sögu ríkari.

Fab Lab smiðjur í grunn- og fjölbrautaskólum

Paulo Blikstein

Paulo Blikstein er prófessor við Stanford háskólann í Bandaríkjunum. Hann hefur á ferli sínum sett upp stafrænar smiðjur í grunn- og fjölbrautaskólum víða um heim. Einn af hvötum Paulo Blickstein er meðal annars að það sé oft mjög erfitt að kenna raungreinar í hefðbundnu skólaumhverfi einfaldlega vegna þess að þær krefjast þess að nemendur prófi sig áfram til að ná raunverulegum skilning á námsefninu. Í þessu samhengi má til að mynda nefna greinar eins og stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði, hönnun og forritun. Continue reading

Laserskornir stenslar

Laserskorinn stensill notaður til að merkja bol

Vectorealism er framleiðslusmiðja staðsett í Ítalíu og sérhæfir sig í að fjöldaframleiða laserskornar vörur fyrir einstaklinga og fyrirtæki.  Vectorrealism hefur tekið þátt í viðburði á Ítalíu sem heitir So Critical So Fasion. Tilgangur þessa viðburðar er að draga saman minni fyrirtæki og sjálfstæða hönnuði inn í heim þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi í framleiðslu á hágæðavörum.

Í grein á heimasíðu Vectorealism eru þeir að segja frá því hvernig Laserinn var notaður við að útbúa stensla sem hægt er að nota til að merkja í fatnað sem dæmi. Notast var við PETG-plast sem er frekar þunnt (0,5-1,5mm) og hentar einstaklega vel í svona skemmtilegheit. Einnig er hægt að notast við Mylar poka sem við eigum töluvert af í smiðjunni og Frosti Gíslasson verkefnastjóri hjá Fab Lab í Vestmanneyjum útbjó eftirfarandi leiðbeiningar tengt áprentun á bol með aðstoð lasersins.

Á Flickr síðu Serpico Naro má sjá nokkrar vel valdar myndir af afrakstrinum af viðburðinum So Critical So Fasion

Crazy Stencil
63 photos
  • shot_1310312237026
  • shot_1310312257749
  • shot_1310312278074
  • shot_1310312297519
  • shot_1310312316572
  • shot_1310312751145
  • shot_1310312833125
  • shot_1310312853327
  • shot_1310313621222
  • shot_1310314080176
  • 1310315437521
  • 1310315455114
  • 1310315479879
  • 1310315567272
  • 1310315580900
  • 1310316574664
  • 1310316603530
  • 1310316948954
  • 1310318897912
  • 1310319748012
  • 1310319785784
  • 1310319815928
  • 1310319834015
  • 1310324933613
  • 1310324955374
  • 1310325249573
  • 1310326850614
  • 1310326880584
  • 1310930534575
  • 1310930383097
  • 1310930363604
  • 1310930248253
  • 1310930204228
  • 1310930187101
  • 1310930112302
  • 1310930038017
  • 1310929957537
  • 1310929903124
  • 1310929851681
  • 1310929568539
  • 1310928639609
  • 1310928553632
  • 1310928516339
  • 1310928431248
  • 1310928360238
  • 1310928315771
  • 1310928300739
  • 1310928286806
  • 1310928233661
  • 1310928135516
  • 1310928046470
  • 1310927643435
  • 1310925441619
  • 1310924532258
  • 1310924518249
  • 1310923324151
  • 1310922205643
  • 1310922168361
  • 1310922104494
  • 1310922038569
  • 1310921040988
  • Crazy Stencil al Baraonda
  • enteogenie_elefant

Nú er bara að fjölmenna í smiðjuna og prófa sig áfram í stensilgerð.

Skrifað út frá grein Vectorealism – Stencil a macchinetta a So Critical So Fashion

Minjagripurinn ég

Hér er á ferðinni skemmtilegt verkefni frá blablabLab á Spáni.  Eftirfarandi sýning var sett upp í janúar 2011.  Gangandi vegfarendum var boðið að láta láta gera þrívíddarmódel af sjálfum sér sem síðar var prentað út með þrívíddarprentara og að launum fengu vegfarendur að eiga þrívíddarmódelið af sjálfum sér.  Notast var við þrjár Kinect myndavélar til að byggja upp þrívíddarmódelið í gegnum Meshlab, Skeinforge og Blender. Að lokum var minjagripurinn prentaður út með Rapman 3.1. Þess má geta að allur hugbúnaður sem notaður var í þetta verkefni er opinn og frjáls hugbúnaður.

 

Það sem frumkvöðlar leggja til samfélagsins

Kaufmann stofnunin sem talin er vera ein stærsta stofnun bandaríkjana sem hlúir að frumkvöðlum gaf nýverið út stuttan skissu-fyrirlestur sem nefnist „Three Things“ eða þrír hlutir.  Þessi skissa reynir að draga fram í dagsljósið kosti þess að hlúa að nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi einfaldlega út frá margfeldisáhrifum slík starfsemi hefur á samfélagið og hagkerfið.  Continue reading

Einfaldar hugmyndir

Stundum eigum við það til að flækja málin óþarflega þegar við leitum að lausnum við vandamálum sem við erum að vinna við í okkar daglega amstri. Oftar en ekki er lausnin beint fyrir framan augun á okkur og oft margfalt einfaldari heldur en við áttuðum okkur á.  Meðfylgjandi myndbútur sýnir hvernig „græn orka“ var nýtt á Filippseyjum til að lýsa upp heimili í fátækrahverfum. Þetta verkefni http://isanglitrongliwanag.org/ mun vera hugarsmíð frá  „umhverfisfrumkvöðlinum“ Ilac Diaz og sjón er sögu ríkari en eins og Leonardo Da Vinci orðaði það “Simplicity is the ultimate sophistication.“

Þökkum Val Valsyni hjá Fab Lab á Sauðárkróki fyrir að deila þessum tengli með okkur en þessi frétt birtist upphaflega hjá reuters og umfjallanar má finna á trust.org

Fatahönnun framtíðarinnar

Það er hreint ótrúlegt hvernig tækninni fleygir fram og sumar tækninýjungar fá mann til að líða dálítið eins og maður sé að horfa á eða lesa vísindaskáldsögu. Dæmi um þetta eru föt í úðabrúsa sem Paul F. Luckham prófessor í „agnar“-fræðum (particle technology) og fatahönnuðurinn Dr. Manel Torres hafa verið að vinna við Imperial háskólan í London. Úðabrúsafötin samanstanda af bómullarþráðum og fjölliðum (gerviefnum) og leysiefnum. Ef hanna á föt fyrir kaldara loftslag þá er einfaldlega úðað fleiri lögum. Einnig er hægt að leysa fötin upp með leysiefnum og nota aftur (fínt fyrir þá sem nenna ekki að þvo þvott :) ). Maður spyr sig er þetta fatahönnun framtíðarinnar, hvað finnst ykkur ?

Unnið út frá grein New Scientist og myndin sem fylgir greininni er eftir Barb Crawford