Opnunartími hér í Fablab Akranes hefur verið óreglulegur að undandförnu vegna aukinnar kennslu, bæði í smiðjunni sjálfri og utan hennar. Næsta föstudag þann 19. oktober og mánudaginn 22. oktober verður lokað og þriðjudaginn 23. oktober verður lokað frá kl. 9:50-10:50 vegna kennslu. Frá og með 1. nóvember verður lokað alla fimmtudaga vegna kennslu, en aðrar lokannir verða óreglulegar og auglýstar síðar.
Þann 8. og 13. nóvember er áætlað að halda tveggja kvölda námskeið (2-3 tíma í senn) í grunnkennslu á Incskape sem er það forrit sem við notum í vinnslu við Epilog laserinn okkar. Kennt verður hvernig teikna á og undirbúa teikningar fyrir laserskurð og munu þátttakendur fá að skera út eigin hönnun í laserskurðarvélinni. Hægt er að skrá sig til þáttöku með því að senda póst á info@fablabakranes.is eða hringja í síma 4211057 á opnunartíma sem er alla virka daga frá 08-12 og 13


Nú í nóvember héldum við í Fablab Akranes fyrsta námskeiðið okkar fyrir almenning. Við takmörkuðum okkur við 20 manns og varð uppbókað strax á fyrsta degi sem auglýst var. Í heildina hittumst við í 3 skifti. Í fysta skiftið var farið í grunnatriði í forritinu Inkscape sem við notum við leyserskurð og Fablab kynnt fyrir þátttakendum. Í hin tvö skiftin var unnið í Inkscape og skorið út í leyser.