Gleðilegt sumar frá Fablab Akranesi :)

Nú fer að líða að sumri og verða sumafríslokannir hér í Fablab auglýstar eftir helgi.  Frá og með Júní verður opið aftur á fimmtudögum þar sem kennslu lýkur.

Undanfarið hefur verið mikið fjör hjá okkur alla fimmtudaga þar sem hressir krakkar úr Brekkubæjar og Grundarskóla hafa heimsótt okkur.  Þau taka sér margt skemmtilegt fyirr hendur og hafa verið til fyrirmyndar í vetur.

Þessir duglegu krakkar komu frá Brekkubæjarskóla ásamt myndmenntarkennara sínum Þóreyju Jónsdóttur:

IMG_9848 IMG_9846 IMG_9845 IMG_9844 IMG_9841

 

Stefnt er á nýtt námskeið í haust og verður það auglýst síðar.  Þeim sem áhuga hafa er velkomið að hafa samband.

Gleðilegt sumar og góða helgi :)

Opnunartími Fablab í Mars.

Nú er opnunartíminn hjá okkur hér í Fablab að komast í eðlilegt horf.  Á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum er opið frá kl 08-16 fyrir utan lokun í hádeginu frá 12-13.  Á fimmtudögum fer að mestu fram kennsla í Fablab og verður því lokað tímabundið á þeim dögum, eða þar til kennsla hættir og mun það verða auglýst nánar.  Einnig verður lokað eftir hádegi á föstudögum um óákveðin tíma en opið til kl. 12.

Ég vil mynna á að þeir sem hafa hug á að nýta sér laserinn í einhvern tíma í senn þurfa að hringja eða senda póst til að tryggja sér tíma í lasernum.  Þá er verið að tala um þá sem hafa hugsað sér lengri tíma en 30 mín í einu.  Það er alltaf hægt að koma við og láta reyna á hvort tækin séu laus, en gott er að panta tíma til að vera viss.  Þeim sem koma í minni verkefni þurfa þó ekki að panta tíma en geta þá gert ráð fyrir að tækin séu upptekin á ákveðnum tímum.  Öllum er velkomið að koma á  opnunartíma og  nýta sér aðstöðuna og þau tæki og tól sem við bjóðum upp á hér.