Námskeið.

Áætlað er að hafa annað grunnnámskeið í leiserskurði  í mars og eru þeir sem hafa áhuga beðnir um að skrifa í athugasemdir hér á síðunni eða á Facebook.  Einnig er hægt að hafa samband í síma 4211057.   Möguleiki er á að halda sér námskeið fyrir hópa ef þess er óskað, td. fyrir saumaklúbba eða vinnustaðahópa.

Í dag lokar Fablab Akranes kl. 14:00 vegna fundarhalda og á morgunn 17. febrúar lokar kl. 12:00.  Framvegis verður lokað kl. 12:00 á föstudögum þangað til annað verður ákveðið.

Leyserskerinn bilaður.

Vegna bilunar er leyserskerinn okkar óstarfhæfur á meðan beðið er eftir varahlutum.  Við mælum með að fylgjast með hér á fablabakranes.is  og á facebook síðunni okkar hvernig staðan er.  Það verður lokað hjá okkur eftir hádegi í dag mánudaginn 28. nóv og þriðjudaginn 29. nóvember vegna viðgerða, en Fablab verður annars opið á venjulegum opnunartímum og við bendum á að hægt er að gera alla undirbúningsvinnu fyrir leyserskurð hér hjá okkur og að vínilskerinn er enn á sínum stað, vel starfhæfur.