Fab Lab á Sauðárkróki í þættinum „Í ljósi nýsköpunar“

Það er oft talað um að mynd segi meira en þúsund orð og fyrir stuttu var tekin upp þáttur á N4 sjónvarpstöðinni sem heitir „Í ljósi nýsköpunar“ þar sem fjallað er um Fab Lab smiðjuna á Sauðárkróki. Í þessum þætti er farið í gegnum hvað Fab Lab smiðjan er og hvernig skólar á svæðinu og frumkvöðlar eru að nýta sér smiðjuna. Við mælum eindregið með því að þið kíkið á þetta en sjón er sögu ríkari.

Styrkir vegna átaks til atvinnusköpunar

Þann 22 september nk. rennur út umsóknarfrestur fyrir styrki í átaksverkefninu Átak til atvinnusköpunar en eins og kemur fram á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er hér á ferðinni styrkáætlun iðnaðarráðuneytisins fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja.

Lesa má nánar um átaksverkefnið á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands http://www.nmi.is/impra/styrkir-og-studningsverkefni/atak-til-atvinnuskopunar/

Styrkir fyrir hönnuði og frumkvöðla

Í september renna út umsóknarfrestir fyrir nokkra styrki sérstaklega ætluðum frumkvöðlum og hönnuðum en þeir eru:

Þessi tilkynning birtist upphaflega á vef Toppstöðvarinnar .